Háskóli Íslands stóð fyrir málþingi í dag um niðurstöður PISA-könnunarinnar. Þar kom fram að efla þurfi kennaranám og beita skýrri og markvissri kennslu.„Það er auðvelt að segja grípa inn í. Ef þetta væri rosa einfalt væri búið að laga það,“ segir Berglind Gísladóttir, dósent við menntavísindasvið.„En við þurfum að leita leiða og vinna saman með öllum hagaðilum til þess að bæta kennslu inni í skólastofum á Íslandi,“ bætir hún við.Þú talar um gæði kennslunnar, er það vandamálið, ástæðan fyrir því að við erum á botninum?„Þetta er ekki einföld spurning. Það liggur beint við að til þess að efla námsárangur þurfi að efla gæði kennslu og við getum ekki eflt gæði kennslu nema við setjum púður í að efla það sem gerist inni í kennslustofunni. Það er gert með því að efla kennaranám.“Berglind segir j