Norsk yfirvöld hafa flutt 69 rússneska ríkisborgara aftur til síns heima en þeir hafa verið fastir á Svalbarða eftir að rússneskt skip sem þeir voru á var kyrrsett af norsku strandgæslunni.Strandgæslan tók skipið yfir 2. september að beiðni úkraínska orkufyrirtækisins Naftogaz. Skipið var þá á leið til Barentsburg, sem er námubær á Svalbarða. Rússnesk fyrirtæki eru þar með námustarfsemi á grundvelli Svalbarðasáttmálans frá 1920, sem heimilar aðilum sáttmálans að vera með atvinnustarfsemi þar þó að yfirráð Noregs séu viðurkennd,Orkufyrirtækið hefur reynt að sækja bætur til Rússa fyrir að leysa til sín eignir fyrirtækisins eftir innlimun Krímskaga í Rússland árið 2014. Réttmæti bótakröfunnar hafði verið staðfest fyrir alþjóðlegum dómstól árið 2023. Naftogaz vill að skipið, sem ber nafnið Pro