Brotaþoli í Höfðatorgsmálinu segist hafa óttast um líf sitt aðfaranótt 17. mars. Þrír menn eru ákærðir fyrir manndrápstilraun gegn honum með því að hafa ekið á hann á miklum hraða, barið hann ítrekað með barefli og stungið hann í rasskinnina.Aðalmeðferð fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Brotaþoli var kallaður fyrir dóm eftir að sakborningarnir þrír höfðu gefið sína skýrslu.Brotaþoli kvaðst hafa mælt sér mót við einn sakborninga, þann sem grunaður er um að hafa ekið á hann, í bílakjallaranum þetta kvöld. Hann hafi ætlað að ræða við sakborninginn á rólegu nótunum vegna meints stuldar á peningum gamals vinnufélaga brotaþola, sem hafi beðið hann um aðstoð.Þegar hann hafi mætt í bílakjallarann ásamt tveimur félögum sínum, sem hann sagðist ekki hafa vitað til að væru vopnaðir, hafi mætt þ