Þetta eru málin sem ríkisstjórnin setur í forgang

159 mál eru á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Fjármála- og efnahagsráðherra er með flest eða 26 en forsætisráðherra og utanríkisráðherra fæst eða 7 hvor.Sanngirnisbætur, náttúru- og innviðagjald, heildarendurskoðun á lögum um hvalveiðar og bókun 35 eru á meðal þeirra mála sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar ætla að setja á dagskrá 158. löggjafarþings sem sett var í dag.Í nóvember hyggst Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra leggja fram frumvarp um almennar sanngirnisbætur sem er ætlað að gefa þeim sem hafa sem börn sætt óforsvaranlegri meðferð, sem er beint eða óbeint á ábyrgð hins opinbera, kost á að sækja um sanngirnisbætur. Eftir áramót ætlar hún að leggja fram frumvarp sem ætlað er að einfalda regluverk. Þar verður meðal annars horft til innleiðingar á EES-reglum og hvort gengið sé leng
Þetta eru málin sem ríkisstjórnin setur í forgang

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd