„Það var enginn að taka þessu alvarlega“

Frammistaða íslenskra grunnskólanemenda í PISA-könnunum hefur aldrei verið verri en í fyrra. Drengir hafa um árabil verið undir meðaltali í lesskilningi en í síðustu könnun lækkuðu stúlkur einnig í öllum þremur greinunum, lesskilningi, stærðfræði og vísindum.Siguróli Magni Sigurðsson, fréttamaður á Norðurlandi, ræddi við nemendur á fyrsta ári í Menntaskólanum á Akureyri. Niðurstaðan kemur þeim ekki á óvart.„Mér fannst fólk ekki alveg vera að leggja sig fram. Það var enginn að taka þessu alvarlega. Þetta var ekki til einkunnar náttúrlega,“ segir Hrafn Leví Þórðarson.„Ég er ekki stoltur af mínum mönnum. 2010 árgangur getur gert miklu betur. Við erum betri en þetta.“Fréttin hefur verið uppfærð.
„Það var enginn að taka þessu alvarlega“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd