Maðurinn sem er ákærður fyrir að stinga mann í bílakjallaranum við Höfðatorg aðfaranótt 17. mars segist hafa verið að reyna að stöðva átök milli tveggja hópa. Áhald sem hann hafi verið með hafi verið afrískur tannbursti sem hann notaði til að róa sig niður þegar hann var stressaður.Skýrslur voru teknar af öllum þremur sakborningum við aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Í fyrri frétt greindum við frá vitnisburði hinna sakborninganna tveggja: þess sem er grunaður um að hafa ekið bifreið á brotaþola á miklum hraða, og þess sem er grunaður um að hafa barið brotaþola ítrekað með óþekktu áhaldi eftir að ekið var á hann.Þriðji sakborningurinn er grunaður um að hafa stungið brotaþola í rasskinnina. Skýrsla var tekin af honum fyrir héraðsdómi síðdegis.Líkt og fyrsti sakborningu