Olga Tokarczuk, handhafi Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum, kemur til Íslands í þessari viku til að taka við Alþjóðlegu bókmenntaverðlaunum Halldórs Laxness.Í pólskumælandi hópum á samfélagsmiðlum þar sem Pólverjar búsettir á Íslandi eiga samskipti hafa komið fram fjöldi móðgandi og árásargjarnra athugasemda um Tokarczuk. Sumar þeirra hafa einnig verið ógnandi. Athugasemdirnar voru tilkynntar og í kjölfarið fjarlægðar.Meðal annars hafa komið fram hótanir um að kasta eggjum í rithöfundinn þegar hún kemur fram opinberlega.Pólska sendiráðið á Íslandi er upplýst um málið. HEFUR LENGI VERIÐ GAGNRÝND AF PÓLSKUM HÆGRI ÖFLUM Andstaðan við Tokarczuk er ekki ný af nálinni. Hún hefur um árabil verið gagnrýnd af hluta pólskra hægri afla.Í fræðigrein Dorotu Kołodziejczyk, prófessors við Háskólann í Wr