„2010 árgangurinn getur gert miklu betur“

Frammistaða íslenskra grunnskólanemenda í PISA-könnunum hefur aldrei verið verri en í fyrra. Drengir hafa um árabil verið undir meðaltali í lesskilningi en í síðustu könnun lækkuðu stúlkur einnig í öllum þremur greinunum, lesskilningi, stærðfræði og vísindum.Siguróli Magni Sigurðsson, fréttamaður á Norðurlandi, ræddi við nemendur á fyrsta ári í Menntaskólanum á Akureyri, sem tóku PISA-könnunina í fyrra. Niðurstaðan kemur þeim ekki á óvart.„Mér fannst fólk ekki alveg vera að leggja sig fram. Það var enginn að taka þessu alvarlega. Þetta var ekki til einkunnar náttúrulega,“ segir Hrafn Levý Þórðarson.„Ég er ekki stoltur af mínum mönnum. 2010 árgangur getur gert miklu betur. Við erum betri en þetta.“
„2010 árgangurinn getur gert miklu betur“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd