Samþykkja undirbúningsframkvæmdir fyrir Fljótagöng

Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt að hefja undirbúningsframkvæmdir vegna Fljótaganga. Málið verður formlega tekið upp í bæjarráði á fimmtudag.Í tilkynningu á vef sveitarfélagsins segir að framkvæmdir snúi að vatnsbólinu í Hólsdal í innanverðum Siglufirði. Markmiðið sé að tryggja vatnsgæði á framkvæmda- og rekstartíma jarðganganna.„Sveitarfélagið hefur óskað eftir því að gerðar verði rannsóknir á hvar vatn sé að finna í jörðu og ef það finnst verður borað eftir því. Þetta er öruggasta leiðin til þess að tryggja vatnsöryggi á svæðinu,“ segir í tilkynningunni. Verkefnið verði unnið í samvinnu við Vegagerðina sem tekur þátt í kostnaði.„Von er á sérfræðingum í vikunni á svæðið til rannsókna. Finnist góð staðsetning má gera ráð fyrir að borað verði á allra næstu vikum.“Fljótagöng eru efst
Samþykkja undirbúningsframkvæmdir fyrir Fljótagöng

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd