Gunnar Helgason rithöfundur fagnar því að íslensk stjórnvöld ætli að verja 150 milljónum króna til eflingar íslenskrar tungu. Hann furðar sig á því hvers vegna það var ekki hægt að setja meira fé beint í bókasafnssjóð á fjárlögum.„Það er ansi sérstakt að taka 80 milljónir af bókasafnssjóði og segjast ætla að bæta 150 milljónum við til að bæta íslenska tungu. Af hverju setti hann ekki bara allan þennan pening í bókasafnssjóð?“ spyr Gunnar og vísar þar í Loga Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.Við kynningu á fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 í gær kom í ljós að bókasafnssjóður fær 142,3 milljónir á fjárlögum næsta árs samanborið við 224,5 milljónir í ár. Framlög til sjóðsins hafa ekki verið minni frá árinu 2020, líkt og sjá má í þessu svari ráðherrans við fyrirspurn Bryndí