Ríkisstjórnin afgreiddi á fundi sínum í morgun frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um útlendinga vegna tímabundinnar verndar vegna fjöldaflótta. Meðal annars er lagt til að hámarkstími tímabundinnar verndar verði lengdur úr fimm árum í sex.