Mohamed Sayidali Ahmed, sem er gefið að sök að hafa stungið brotaþola í Höfðatorgsmálinu svokallaða í rasskinn, segist hafa verið í bílakjallaranum til þess að reykja kannabis. Skyndilega hafi átök brotist út og hann hafi flækst í þau þegar hann reyndi að stöðva þau. Þá segir hann það sem ákæruvaldið telur að sé hnífur vera afrískan tannbursta, sem hann noti til að koma í veg fyrir að hann nagi neglurnar.