Tólf þjóðir hafa tilkynnt að þær hyggist takmarka viðskipti við landtökubyggðir Ísraelsmanna á Vesturbakkanum. Ísland er þar á meðal. Utanríkisráðherra Bretlands sakar Ísraelsmenn um að horfa fram hjá þjóðernishreinsunum á Vesturbakkanum.Þjóðirnar tólf sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu um þvinganirnar. Auk Íslands voru þetta Kanada, Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Finnland, Írland, Bretland, Spánn, Portúgal, Frakkland og Pólland. Í yfirlýsingunni kemur fram að aðgerðir Ísraelsmanna á Vesturbakkanum grafi undan möguleikanum á tveggja ríkja lausn. „Ástandið versnar hratt vegna fordæmalauss ofbeldis af hálfu landtökufólks og stækkunar landtökubyggða. Ríkisstjórn Ísraels verður að stöðva stækkun landtökubyggða án tafar,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.Þar kemur jafnframt fram að þjóðirnar