Skýrslutökur yfir sakborningum í Höfðatorgsmálinu standa yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem aðalmeðferð fer fram. Þremur mönnum er gert að sök tilraun til manndráps í bílakjallara við Höfðatorg 17. mars síðastliðinn.Tveir sakborningar eru mættir í dómsal í dag en sá þriðji er erlendis og tekur þátt í gegnum fjarfundarbúnað.Skýrslutaka yfir fyrsta sakborningnum tók tæpar tvær klukkustundir. Honum er gefið að sök að hafa ekið á brotaþola á mikilli ferð. Hann gekkst við því að hann hefði hvíta Land Roverinn í sinni umsjá og að hafa ekið honum þetta kvöld, en kvaðst ekki hafa ekki ekið bílnum þegar honum var ekið á brotaþola.Hann sagðist ekki hafa hitt brotaþola áður, að á milli þeirra væru engin tengsl og engin vandamál. Brotaþoli hefði átt í útistöðum við aðra í bílakjallaranum þetta kvöl