Stefnt er að því að fulltrúar Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna fundi um Úkraínustríðið síðar í þessum mánuði. Þetta sagði Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu við fréttamenn í morgun, þar sem hann ræddi fundi sem Steve Witkoff og Jared Kushner samningamenn Bandaríkjanna áttu í bæði Moskvu og Kyiv um helgina.Zelensky sagðist vilja halda fund í haust. „Ef september gengur upp væri það frábært. Því fyrr, því betra,“ sagði Zelensky.Hann sagði jafnframt að hann vonaðist til að hitta Donald Trump forseta Bandaríkjanna síðar í þessum mánuði til að ræða loftvarnir í Kyiv. Hann yrði eftir 20. september.Þessir fyrirhuguðu fundir eru framhald viðræðna Witkoffs og Kushners við Pútín og Zelensky um síðustu helgi. Þær virðast ekki hafa skilað miklu þó að þær hafi verið á jákvæðum nótum. Witkoff sagði a