Tveir listaverkaþjófar brutust inn í Renoir-safnið í Cagnes-sur-Mer á frönsku rivíerunni snemma í morgun og stálu þaðan fjórum málverkum eftir franska listamálarann Pierre-Auguste Renoir.Þjófarnir skildu þó við tvö verkanna á flótta sínum og komust því á brott með tvö málverk.Skrifstofa bæjarstjórans í Cagnes-sur-Mer hefur greint frá því hvaða verk þetta eru. Annars vegar portrettmynd af frú Colonna Romano frá 1910 og hins vegar Jeune femme au puits, eða Ung stúlka við brunn, frá 1886.Verkin tvö sem urðu eftir nefnast Coco lisant, eða Coco les, frá 1905 og Portrett af frú Pichon frá 1895. BÚNIR JÁRNSÖG OG RAFKNÚNUM HNÍF Þjófavarnarkerfi safnsins fór í gang þegar klukkuna vantaði tólf mínútur í sex að staðartíma í morgun. Þjófarnir voru vel útbúnir og þekktu voru vel undirbúnir, sagði bæ