Qossay Ali Yahya Alsadi, sem sætir ákæru fyrir tilraun til manndráps í félagi við tvo aðra í bílakjallara undir Höfðatorgi, segist engan hafa barið umrætt kvöld. Hann hafi komið í bílakjallarann fyrir tilviljun og óvart sest inn í bíl sem hafði skömmu áður verið ekið á brotaþola á mikilli ferð.