Áframhaldandi viðhaldsvinnu við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur verið frestað fram á vor. Samkvæmt áætlun átti að vera vinna við brúna fram í miðjan mánuð og umferð aðeins hleypt yfir í hollum nokkrum sinnum á dag, á meðan reglubundið viðhald færi fram.Ekki verða þá frekari umferðartafir við brúnna vegna viðgerða þetta haustið.Vætutíð hefur gert verkafólki erfitt fyrir við málningarvinnu og fleira, svo ákveðið var að fresta því sem eftir er. Ekki er búið að ákveða hvaða dag framkvæmdir hefjast að nýju.