Konur sem vinna í Eiffel-turninum voru beðnar um að fara afsíðis og í sumum tilfellum voru karlmenn fengnir til að ganga í störf þeirra á laugardag. Það gerðist þegar Mahant Swami Maharaj, leiðtogi Bochasanwasi Akshar Purushottam Swaminarayan Sanstha, sem er trúfélag hindúa með náin tengsl við Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, kom og heimsótti turninn á laugardag.Þetta gerðu stjórnendur Eiffel-turnsins að beiðni trúfélagsins sem bað um að trúarleiðtoginn þyrfti sem minnst að umgangast konur meðan á heimsókninni stóð.Sú ákvörðun dró dilk á eftir sér því starfsfólk var mjög ósátt og í gær var Eiffel-turninn lokaður meðan stjórnendur ræddu við starfsfólk. Turninn var opnaður aftur í morgun.Starfsmannafélag Eiffel-turnsins fordæmdi að stjórnendur gæfu út fyrirmæli sem leiddu til þess a