Kristinn Rúnarsson og Þorsteinn Guðjónsson voru meðal fremstu fjallamanna landsins þegar þeir 27 ára gamlir lögðu upp í örlagaríkan leiðangur á hinn 7161 metra háa tind Pumori við landamæri Nepals og Kína. Í ferðinni gerðust óvæntir atburðir sem aldrei hafa verið upplýstir að fullu. Æskuvinirnir skiluðu sér ekki heim.Röð tilviljana gerði það að verkum að þetta gamla mál kom aftur upp á yfirborðið árið 2018.Hinn 92 ára gamli Rúnar Guðbjartsson, faðir Kristins, segir söguna í sjónvarpsþættinum Á gamans aldri.Æskuvinirnir Þorsteinn Guðjónsson og Kristinn Rúnarsson reyndu að klífa fjallið Pumori í Nepal árið 1988 en skiluðu sér aldrei heim. 30 árum síðar opnaðist þetta gamla sár aftur.Í hlaðvarpsþættinum Mannshvörfin í Himalaja heyrum við í vinum Þorsteins og Kristins sem voru með þeim í leiða