Ráðamenn í Katar fengu ábendingar um það áður en Hamas réðst á Ísrael í október 2023 að samtökin hygðu á óhugnanlega árás og komu þeim á framfæri við Ísraela. Þetta segir ísraelska blaðið Haaretz í dag og byggir á væntanlegri bók sem blaðamenn þess hafa unnið að.Árás Hamas 23. október 2023 er mannskæðasta árás á Ísrael frá upphafi.Haaretz segir að Yahya Sinwar, þáverandi leiðtogi Hamas, hafi varað fyrrverandi palestínskan embættismann við árásinni og líkt henni við jarðskjálfta. Blaðið segir embættismanninn hafa komið upplýsingunum á framfæri við ráðgjafa sem vinnur fyrir stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.Mohamed bin Zayed Al Nahyan, forseti furstadæmanna, er síðan sagður hafa hringt í Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og látið hann vita að stór árás væri yfirvofand