Kostnaður íslenska ríkisins við sérundanþágu fyrir millilandaflug í ETS-viðskiptakerfinu gæti numið rúmum þremur milljörðum króna á tveimur árum. Niðurgreiðslur til flugrekenda á sambærilegum forsendum halda áfram út áratuginn og gætu kostað ríkið tæpa sjö milljarða áður en yfir lýkur.