Rúmlega 1.600 höfðu skrifað undir áskorun upp úr klukkan sjö í morgun þess efnis að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segi af sér sem utanríkisráðherra og að Viðreisn hætti þátttöku í ríkisstjórn.Sigfús Aðalsteinsson, forsvarsmaður Íslands – þvert á flokka, stofnaði í gær undirskriftasöfnun á Ísland.is. Þar er skorað á Þorgerði Katrínu að segja þegar af sér ráðherradómi og leiða Viðreisn úr ríkisstjórn.Í rökstuðningi með áskoruninni segir að ríkisstjórnin hafi þvert á fyrri yfirlýsingar gert ESB-málið að sínu helsta baráttumáli. „Nú hefur þjóðin hafnað málatilbúnaði ríkisstjórnarinnar. Sú niðurstaða verður að hafa pólitískar afleiðingar. Það gengur ekki að segjast treysta þjóðinni fyrir ákvörðuninni en virða síðan niðurstöðu hennar að engu.“Þorgerður Katrín og Viðreisn hafi leitt þetta og ver