Formenn stjórnarflokkanna, þær Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, kynna þingmál ríkisstjórnarinnar á blaðamannafundi fyrir hádegi í dag. Þar kemur fram hvaða lagafrumvörp og þingsályktunartillögur hver og einn ráðherra hyggst leggja fram í vetur.Á fundinum ætti að skýrast hvaða þingmál ríkisstjórnin leggur mesta áherslu á og hvenær helstu mál koma inn í þingið. Búast má við að nokkur þeirra verði endurflutt frá síðasta þingi.Upptaktur þingvetursins er hafinn. Fjárlagafrumvarp næsta árs var kynnt í gær þar sem Daði Már Kristófersson boðaði að rekstur ríkissjóðs fari úr mínusi í plús og boðar fimm milljarða króna afgang á fjárlagafrumvarpi næsta árs. Fjárlög hafa ekki verið afgreidd með afgangi