Lögreglumenn handtóku mann í vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt sem vopnaður hnífi hafði uppi ógnandi hegðun.Lögreglumenn handtóku mann sem hafði uppi ógnandi hegðun í vesturhluta Reykjavíkur.RÚV / Birgir Þór HarðarssonMenn sem þóttu óvelkomnir á matsölustað og mathöll í miðborginni gengu leiðar sinnar eftir að lögreglumenn komu til að vísa þeim brott. Óvelkominn gestur var rekinn brott úr fjölbýlishúsi miðsvæðis í borginni og á svipuðum slóðum var tilkynnt um skemmdarverk á skúr.Það mál er til rannsóknar. Auk þessa höfðu lögreglumenn afskipti af ökumönnum víðs vegar um borgina vegna ýmis konar ástands þeirra eða farartækjanna ásamt því sem nokkrir óku fullgreitt. Meðal þeirra var einn með sólarhringsgömul ökuréttindi.