Ný könnun: Lula og Bolsonaro hnífjafnir

Horft yfir Guanabaraflóa þangað sem Sykurmolafjall gnæfir yfir Rio de Janeiro.EPA / GERNOT HENSELNý skoðanakönnun sýnir að nánast engu munar á fylgi Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseta og helsta keppinautnum Flávio Bolsonaro, hægri sinnuðum öldungadeildarþingmanni og syni Jair Bolsonaro fyrrverandi forseta.Í könnuninni sem Quaest gerði fyrir dagblaðið Globo var líkt eftir fyrri og síðari umferð forsetakosninganna sem haldnar verða í október. Í fyrri umferðinni fengi Lula 36 prósent atkvæða og Bolsonaro 29 prósent. Í þeirri síðari fengju báðir 41 af hundraði. Lula var kjörinn forseti þriðja sinni haustið 2022 þegar hann bar naumt sigurorð af Jair Bolsonaro.
Ný könnun: Lula og Bolsonaro hnífjafnir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd