Nú er vitað að níu fórust í tveimur öflugum sprengingum í herstöð í borginni Viacha um þrjátíu kílómetra frá La Paz, höfuðborg Bólivíu, á föstudaginn var. Allir hinna látnu eru hermenn, liðsforingi og átta ungir menn að sögn varnarmálaráðuneytisins.Af þeim 84 sem slösuðust liggur 31 enn á sjúkrahúsi samkvæmt upplýsingum heilbrigðisráðuneytisins. Fimm hermanna er enn saknað. Leit stendur enn yfir og í gær fjarlægðu slökkviliðsmenn og björgunarsveitir heilmikið brak undir vökulu auga herlögreglunnar.Sprengiefni sem hafði verið gert upptækt var geymt í herstöðinni og forsetinn Rodrigo Paz segir það sem eftir var hafa verið flutt annað í öryggisskyni. Flestir þeirra 240 hermanna sem hafast við í herstöðinni voru við skyldustörf annars staðar þegar atvikið varð.Ekki er vitað hvað olli sprenging