Óbeinar reykingar stuðluðu að nærri 1,7 milljónum ótímabærra dauðsfalla árið 2023 og valdið snemmbærum, alvarlegum sjúkdómum samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem birtust í vísindaritinu The Lancet í dag.Yfir 2,7 milljarðar manna, þar á meðal 767 milljón börn, finna fyrir áhrifum óbeinna reykinga á heimsvísu. Rúmlega fimm milljónir barna fengu öndunarfærasýkingar vegna reykinga annarra árið 2023.Fólk sem statt er nærri reykingamanni verður fyrir svokölluðum hliðarreyk frá tóbaksvörunni sjálfri, sem er algerlega ósíaður og þéttur, og þeim reyk sem viðkomandi andar frá sér.Í greininni segir að tóbak sé enn ein helsta orsök margvíslegra sjúkdóma og bent á að fólk sem ekki reykir sé meðal þeirra átta milljóna sem talið er að hafi látist úr reykingatengdum sjúkdómum árið 2023.Til að meta ú