Spillingarrannsóknarstofnun ríkisins Nabu gerði húsleit á skrifstofu saksóknara um helgina í tengslum við rannsókn á svonefndum falsorðasímaverum og peningaþvætti. Stofnunin tilkynnti á laugardag að hún hefði komist á snoðir um slíkt athæfi meðal starfsmanna saksóknaraembættisins.Saksóknarinn Ruslan Kravchenko neitar alfarið sök og segir að enginn fótur sé fyrir ásökunum í sinn garð. Afsögnin sé til að koma í veg fyrir að embættið verði notað í pólitískum átökum, samkvæmt umfjöllun Kyiv Independent.Spilling hefur verið landlæg í Úkraínu árum saman og lítið hefur dregið úr henni eftir að innrásarstríð Rússa hófst. Eitt af kosningaloforðum Volodymyrs Zelensky forseta var að uppræta spillingu.Evrópusambandið hefur krafist þess að gerðar verði umbætur til að taka á henni ætli Úkraína að eiga m