„Þó að hallalaus fjárlög séu góð, og bara frábært ef við náum því, en það má ekki vera, eins og forsætisráðherra orðaði það svo faglega í þinginu í vetur: „Sama hvað það kostar“. Mér finnst þetta vera allt of dýru verði keypt,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins sem situr í fjárlaganefnd.Hann segir ríkisstjórnina ekkert virðast hafa lært af fjárlögum yfirstandandi árs. „Þar sem ríkisstjórnin var með krónutöluhækkanir umfram verðbólgumarkmiðið.“ Hann hefur ekki trú á að frumvarpið hjálpi við að ná niður vöxtum og verðbólgu. ÞEIR SEM SKULDI BORGI SKATTINN Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp í morgun og boðar fimm milljarða króna afgang á næsta ári. Ríkisstjórnin telur hallalaus fjárlög bestu leið ríkisins til að sporna við verðbólgu og