Björn Gíslason, rakari á Selfossi, á að baki rúmlega sextíu ára starfsferil. Hann stendur á áttræðu og vonar að langt sé í að skærin fari á hilluna.Björn segist hafa klippt um 125 þúsund höfuð á þeim árum sem hann hefur starfað sem rakari.Björn varð 80 ára 2. september. Hann er með hárgreiðslustofuna sína í Miðgarði í miðbænum þar sem tveir synir hans starfa meðal annars með honum. Það er alltaf nóg að gera á stofunni enda er hann að klippa þrjá daga í viku.„Ég mun halda þessu eitthvað áfram á meðan ég hef ánægju af því og heilsu til. Ég fór á samning 1964 hjá pabba, pabbi var rakari hér, byrjaði hér 1948 og hafði þann draum í sinni að ég tæki við af honum, sem ég og gerði,“ segir Björn.Og er þetta alltaf jafn skemmtilegt?„Já, alltaf jafn skemmtilegt. Ég er búinn að ganga í gegnum marga st