Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, á fund í kjölfar myndbirtingar Donalds Trump Bandaríkjaforseta á samfélagsmiðlum í dag.„Þar var komið skýrt á framfæri þeirri afstöðu að færslan væri með öllu óviðeigandi,“ segir í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu.Trump birti síðdegis á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, kort af Bandaríkjunum, Mið-Ameríku, Kanada, Grænlandi og Íslandi þar sem bandaríski fáninn þekur öll lönd. MYNDIN BIRT EFTIR AÐ ESB KYNNTI FJÁRFESTINGAR Á GRÆNLANDI Forsetinn tilgreindi ekki hvers vegna hann birti kortið en enginn texti fylgdi færslunni. Tímasetningin vekur þó óneitanlega athygli en í morgun undirrituðu Grænland, Danmörk og Evrópusambandið samning um fjárfestingu í öflugra ger