„Ef sagan kennir okkur eitthvað þá er ólíklegt að þetta verði niðurstaðan,“ segir Magnús Geir Eyjólfsson, fréttamaður RÚV, sem sat kynningu fjármálaráðherra á nýjum fjárlögum í morgun. Gangi fjárlagafrumvarpið eftir verður það í fyrsta sinn síðan 2018 sem ríkissjóður er hallalaus.Upphaflegt fjárlagafrumvarp fyrir árið í ár hljóðaði upp á 15 milljarða halla, þegar þingið hafði lokið sér af var talan komin upp í 28 milljarða og niðurstaðan varð að lokum 67 milljarða halli.Í spilaranum hér að ofan má sjá viðbrögð ríkisstjórnar, stjórnarandstöðu, formanna verkalýðsfélaga, hagfræðings og framkvæmdastjóra fyrirtækja í ferðaþjónustu.Fréttastofa flutti fréttir af frumvarpinu og viðbrögðum við því í allan dag. Samantekt má sjá hér.