Kjörsókn í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við ESB jókst meira á landsbyggðinni heldur en í borginni frá alþingiskosningum 2024. Að sögn stjórnmálafræðings hafði það ekki úrslitaáhrif á niðurstöðuna en áhuginn sé þó athyglisverður. Það veki einnig athygli hve mikið fylgi Já hafi að endingu haft á landsbyggðinni.