„Skuldahlutföllin hjá ríkinu eru ennþá að hækka“

Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur segir að þótt allir geti verið sammála um að verið sé að laga afkomuna þá megi lítið út af bregða. Áfram hækki skuldahlutfall ríkissjóðs og dregið sé úr fjárfestingum þegar það sé stöðnun í hagkerfinu.Fjárlagafrumvarp næsta árs var kynnt í morgun. Stefnt er að hallalausum fjárlögum og reiknað með fimm milljarða króna afgangi. Meðal aðgerða er gjaldtaka á vinsælum ferðamannastöðum í eigu ríkisins, hækkun kílómetragjalds og hærri bankaskattur. OF SNEMMT AÐ FAGNA Konráð segir of snemmt að fagna hallalausum ríkissjóði.„Eins og óvissubilið sem er kynnt í frumvarpinu sýnir getur þetta brugðið til beggja vona. Það sem maður hefur kannski meiri áhyggjur af í því samhengi er hvernig staðan í hagkerfinu er. Hún er ekkert rosalega góð,“ segir hann.Við séum hálfpar
„Skuldahlutföllin hjá ríkinu eru ennþá að hækka“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd