Allt að 100 þúsund eignir rangt verðmetnar

Eigendur allt að 100 þúsund íbúða í Danmörku hafa greitt ranga fasteignaskatta frá árinu 2024 þar sem mistök í fasteignamati urðu til þess að eignirnar voru rangt metnar árið 2022. Skattamálaráðherra Danmerkur segir að greiðendurnir verði að geta leitað leiða til að fá úr sínum málum skorið.Skattayfirvöld upplýstu um þetta eftir að danska ríkisútvarpið, DR, hafði ítrekað reynt að fá svör við því hvernig vegna lokaúttekt á sumum íbúðum var verulega frábrugðin fyrri úttekt. Mistökin uppgötvuðust í vor en ekki var upplýst um það fyrr en DR fór að spyrja spurninga.Mistökin urðu þegar gerð var lokaúttekt á um 300 þúsund íbúðum sem áttu að borga fasteignaskatt á þessu ári miðað við mat ársins 2022. Í mörgum tilvikum var það mat nokkuð frábrugðið bráðabirgðamati sem var sent út árið 2023. Tilkynn
Allt að 100 þúsund eignir rangt verðmetnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd