Einkamiðlar fá meiri pening en dregið úr auglýsingum RÚV

Beinn stuðningur við einkarekna fjölmiðla mun hækka verulega á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Framlög hækka úr 668,3 milljónum króna á þessu ári í 945,9 milljónir króna á því næsta.Í upphafi stóð til að bæta 300 milljónum króna við þennan pott til að styrkja ritstjórnir einkamiðla. Eftir almenna sparnaðarkröfu ríkisins á málaflokkinn hljóðar raunveruleg hækkun upp á tæpar 278 milljónir króna.Miklar sviptingar hafa verið á íslenskum fjölmiðlamarkaði síðustu ár. Fjölmiðlafyrirtækið Sýn hætti framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta í byrjun september. Þetta markaði lokin á 40 ára sögu sjónvarpsfrétta á Stöð 2 og Sýn.Fyrir rúmum þremur árum lögðu Fréttablaðið og sjónvarpsstöðin Hringbraut upp laupana, eftir 22 ára sögu blaðsins.Auglýsingakaup Íslendinga námu samtals 29,4 milljörðum
Einkamiðlar fá meiri pening en dregið úr auglýsingum RÚV

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd