Þurftu að slátra fleiri eldislöxum vegna marglyttna

Marglyttur herjuðu á laxa í eldiskvíum Kaldvíkur í Reyðarfirði um helgina. Í frétt Austurfréttar, sem greindi fyrst frá, segir að marglytturnar geti valdið ýmiss konar vandamálum í eldinu. Þær brenni fiskinn og skapi á honum sár og geti dregið úr súrefnismagni. Skaði þeirra sé mismikill milli ára.Dauði þeirra laxa sem hafa verið ræktaðir frá árinu 2025 jókst um 0,3 prósentustig vegna atviksins um helgina. Kaldvík hefur slátrað hluta fisksins fyrr en til stóð vegna atviksins í varúðarskyni.Kaldvík sendi frá sér tilkynningu um atvikið til kauphallarinnar í Osló og á Íslandi, hvar fyrirtækið er skráð á markaði. Fyrirtækið segir ástandið stöðugt en að það fylgist áfram náið með. Fiskarnir, sem eru af 2026-kynslóðinni, séu staðsettir í kví í öðrum firði og hafi því ekki orðið fyrir áhrifum af a
Þurftu að slátra fleiri eldislöxum vegna marglyttna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd