Afhentu ráðherra 2.511 undirskriftir vegna Kristness

Fyrir hönd velunnara Kristness afhenti María Pálsdóttir heilbrigðisráðherra 2.511 undirskriftir þar sem skorað er á stjórnvöld að bregðast við vandkvæðum spítalans hið snarasta, en þörf er á miklu viðhaldi. Göngudeild endurhæfingar SAk, sem áður var á Kristnesspítala, er á leið í leiguhúsnæði á Akureyri. Rýma þurfti svæðið sökum myglu í húsnæði spítalans fyrr á þessu ári.Alma D. Möller tók við listanum af Maríu og sagði við það tilefni að málin væru í skoðun:„Þetta er tvíþætt verkefni. Annars vegar þjónustan [...] og hinn hlutinn er húsnæðið. Það er hópur að störfum til þess að skoða ástandið enn betur og kostnaðarmeta. Sú vinna er auðvitað í gangi og það er ekki tímabært að segja neitt um það. Við þurfum að gæta hagsmuna ríkisins og vöndum okkur við það. “Guðjón Hauksson, forstjóri SAk, s
Afhentu ráðherra 2.511 undirskriftir vegna Kristness

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd