Finnar ljúka 200 km girðingu við rússnesku landamærin

Finnar hafa formlega lokið byggingu á 200 kílómetra girðingu meðfram landamærunum að Rússlandi. Tilgangurinn með girðingunni er að koma í veg fyrir að Rússar geti sent flóttamenn yfir landamærin til að láta reyna á innviði landsins, eins og brögð voru að fyrir tæpum þremur árum.Landamærunum var fyrst lokað í desember 2023. Þá höfðu Rússar sent yfir 1.300 innflytjendur án vegabréfsáritunar að landamærunum. Margir þeirra voru á reiðhjólum. Síðan þá hefur ástandið verið rólegra og flóttamenn um landamærin hafa aðeins verið örfáir á þeim tíma. En upp úr því hófst bygging girðingarinnar, sem stjórnvöld hafa talið nauðsynlega til að tryggja eigið öryggi. Hún er alls 4,5 metra há og með gaddavír.Finnsk stjórnvöld héldu blaðamannafund í morgun við Nuijamaa-landamærastöðina á þessum tímamótum. Sú s
Finnar ljúka 200 km girðingu við rússnesku landamærin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd