ESB eykur fjárfestingu á Grænlandi – meðal annars í fjarskiptum

Evrópusambandið ætlar að setja 200 milljónir evra aukalega – jafnvirði 28 milljarða íslenskra króna – í fjárfestingar á Grænlandi næstu tvö árin. Þetta tilkynnti Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á blaðamannafundi í Nuuk í morgun.Þetta jafngildir alls 400 milljóna evra fjárfestingu á þessum tveimur árum – jafnvirði 56 milljarða íslenskra króna.Stuðningurinn snýst einkum um þrennt: hreina orku, mikilvæga málma og netsamband. Í morgun var undirritaður samningur milli Evrópusambandsins, Grænlands og Danmerkur um það síðastnefnda, sem felur í sér níu milljóna evra fjárfestingu í öflugra gervihnattasambandi.Evrópusambandið leggur til fimm milljónir og Danmörk og Grænland tvær hvort. Þetta á að styrkja netsamband í dreifðari byggðum í Norður- og Austur-Grænlandi.V
ESB eykur fjárfestingu á Grænlandi – meðal annars í fjarskiptum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd