Akureyrarbær á 98,2% hlut í Norðurorku. Aðrir eigendur eru Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit og Hörgársveit.Á aðalfundi Norðurorku voru tillögur um breytingar á stjórn samþykktar. Þær þýða að minni sveitarfélögin missa áheyrnarfulltrúann. Breytingin eykur tortryggni í garð stjórnarinnar, segir oddviti sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar.„Þetta í raun eykur bara tortryggni og trú á stjórninni. Það er bara gagngert verið að halda litlu sveitarfélögunum frá. Réttara væri að hvert sveitarfélag sem á hlut í Norðurorku fengi áheyrnarfulltrúa,“ segir Hermann Ingi Gunnarsson, oddviti sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar. Hann bendir á að þannig sé það hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Þar eigi bæði Akraneskaupstaður og Borgarbyggð fulltrúa í stjórn. NÝ EIGENDAST