Allir þingfundir á haustþingi hefjast klukkan 13:30 samkvæmt tillögu forseta Alþingis og þingflokkar hafa samþykkt. Þetta er nokkur breyting á skipulagi þingstarfa en undanfarin ár hafa tímasetningar þingfunda mismunandi eftir dögum. Á mánudögum og miðvikudögum hafa þingfundir byrjað klukkan 15, á þriðjudögum klukkan 13:30 og 10:30 á fimmtudögum. Markmið breytinganna er að setja starfsemi þingsins fastari skorður. Um tilraun er að ræða og verður metið hvernig til tókst að loknu haustþingi. Nýja fyrirkomulagið tekur gildi í næstu viku en þingfundir á fimmtudag og föstudag, þar sem fjárlagafrumvarpið veðrur rætt, hefjast klukkan 10:30. RÚV / Ragnar Visage