Spyr um stöðu tekjulágra við takmörkun verðtryggðra lána

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Vikulokunum á laugardaginn að frumvarp um að draga úr vægi verðtryggingar verði lagt fram í haust – og sýndi um leið að hluta til á spilin, hvar eigi að byrja. „Það sem liggur fyrir að við munum leggja til, fjármálaráðuneytið, í haust er að takmarka þessi lengri verðtryggðu lán, eða takmarka sem sagt lán sem eru þannig að það er hætta á að fólk lendi í neikvæðri eiginfjárstöðu,“ sagði hann.„Þetta gerðist eftir hrunið. Það eru margir sem tengja við þetta að fasteignaverðið stóð í stað eða lækkaði, lánin héldu áfram að hækka, þetta voru mjög löng lán sem þýddi að raunverulega höfuðstólsgreiðslurnar eru mjög lágar til að byrja með og þá bara kláraðist eigið fé og fólk festist í eignunum sínum sem var alveg hræðilegt fyri
Spyr um stöðu tekjulágra við takmörkun verðtryggðra lána

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd