Samtök ferðaþjónustunnar segja stjórnvöld kasta krónunni fyrir aurinn með aukinni gjaldtöku á ferðaþjónustu sem boðaðar hafa verið í nýju fjárlagafrumvarpi. Fjármálaráðherra kynnti frumvarpið í dag og þingið kemur saman á morgun.Gert er ráð fyrir að fimm milljarðar fáist með gjaldtöku á ferðaþjónustu og fjórir milljarðar með hækkun virðisaukaskatts á baðlón.„Þetta eru auðvitað bara mikil vonbrigði fyrir ferðaþjónustuna,“ segir Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. „Eins og þetta er lagt upp er þetta mikið högg fyrir okkur og verra en við bjuggumst við.“ TILLÖGUR UM BÆTTA NÝTINGU Á JAÐARSVÆÐUM Pétur segir aukna gjaldtöku draga úr ferðamannastraumi hingað til lands og þar með tekjum ferðaþjónustufyrirtækja sem Pétur segir skila mun meiru í ríkissjóð en boðaðar aðgerðir stjó