Lýsir áhyggjum af sjálfvirkum drónum

Volker Turk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, segist skelfingu lostinn yfir fréttum um að sjálfvirkir drónar, sem Rússar skutu á loft, hafi drepið þrjá Úkraínumenn í síðasta mánuði.Hann ávarpaði Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í dag og lýsti áhyggjum af þróuninni. Turk tók undir kröfur um tafarlaust bann við vopnum sem geti kostað mannslíf án aðkomu manna. DRÓNI VALDI SJÁLFUR SKOTMARK The New York Times greindi frá því 24. ágúst að rússneskur dróni hefði drepið þrjá Úkraínumenn í árás í úkraínsku borginni Zaporizhzhia 6. júlí. Dróninn leit út eins og líkan af flugvél. Hann flaug að bensínstöð þar sem hann brotlenti á vegg og sprakk. Sprengjubrot úr drónanum urðu þremur að bana.Þetta var þó ekki dróni eins og hefur verið notaðar í fjölda loftárásum Rússa á Úkraínu undanfarna mán
Lýsir áhyggjum af sjálfvirkum drónum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd