Forsetahjónin verða við útför Noregskonungs

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, verða við útför Haraldar Noregskonungs á miðvikudaginn. Yfirvöld í Noregi ákváðu í öryggisskyni að birta ekki lista yfir þá þjóðarleiðtoga sem sækja útförina. Halla Tómasdóttir og Haraldur Noregskonungur.Skrifstofa forseta Íslands / Myriam Marti og FS FotoHalla minntist Haraldar þegar hann lést 28. ágúst og rifjaði upp kynni þeirra. „Það var svo fallegt í hans fari. Við vorum að ræða flókin mál, flókna stöðu í heiminum, áskoranir, en einhvern veginn var stutt í brosið og hláturinn og mennskuna og ég fann það svo hvað hans einlæga ást á sinni þjóð var honum alltaf efst í huga. Ég fann líka fyrir þessari ást í garð Íslendinga,“ sagði Halla.
Forsetahjónin verða við útför Noregskonungs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd