Snjóflóð sem féll í fjallinu Mizhirgi í Rússlandi varð minnst 11 fjallgöngumönnum að bana. Sex til viðbótar er saknað.Flóðið féll síðdegis í gær og þá var 33 manna hópur fjallgöngumanna á staðnum. Tíu manns tókst að flýja af sjálfsdáðum og björgunarsveitarmönnum tókst að kom sex í viðbót til bjargar. Í yfirlýsingu frá yfirvöldum kemur fram að björgunarstarf standi enn yfir en sé erfitt vegna krefjandi landslags og hættu á frekari snjóflóðum.Mizhirgi er áttunda hæsta fjall Rússlands, um 5.000 metrar. Það er nærri landamærum Georgíu og er vinsælt meðal fjallgöngufólks þar sem þar fara saman jöklar og skógar. Rannsókn er hafin á hvort glæpsamleg vanræksla hafi valdið flóðinu.