Sigur Alternative für Deutschland feikileg tíðindi

Sigur harðlínuflokksins Alternative für Deutschland eru feikileg tíðindi og þó að það sé ekki enn útséð um hvort flokkurinn nái að mynda stjórn í sambandslandinu Saxlandi-Anhalt er þetta sigur, að sögn Eiríks Bergmanns, prófessors í stjórnmálafræði. Hann var gestur Morgunútvarpsins á Rás 2 í morgun. LANGSTERKASTA VÍGI AFD Í ÞÝSKALANDI Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum hlaut AfD 43,8 prósent atkvæða. Kristilegir demókratar, flokkur Friedrich Merz Þýskalandskanslara, fékk 17,2 prósent atkvæða. Enginn flokkur hlaut hreinan meirihluta og ljóst að stjórnarmyndunarviðræður verða flóknar.„Þetta eru auðvitað feikileg tíðindi. Það hefur ekki gerst fyrr að AfD hafi komist til valda í nokkru fylkja Þýskalands og það er svo sem ekki útséð með það enn þá hvort að þeir nái að mynda stjórn. Þeir fengu n
Sigur Alternative für Deutschland feikileg tíðindi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd