Tveir handteknir grunaðir um frelsissviptingu og hótanir

Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók tvo menn á Akureyri á föstudag, vegna gruns um að þeir hefðu frelsissvipt mann og hótað honum deginum áður. Þeim grunuðu var sleppt að loknum skýrslutökum og húsleit.Yfirmaður rannsóknardeildar hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra, Skarphéðinn Aðalsteinsson, segir handtökur hafa verið á tveimur stöðum í bænum á föstudag og talið rétt miðað við aðstæður að óska eftir liðsinnis sérsveitarinnar.Það að mönnunum hafi svo verið sleppt að loknum aðgerðunum þýðir að ekki hefur talið spilla rannsókn að þeir gangi lausir - né að almenningi stafi ógn af þeim.Málið er til rannsóknar og lögregla segir ekki rétt að veita frekari upplýsingar á þessu stigi.
Tveir handteknir grunaðir um frelsissviptingu og hótanir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd